2022-08-15 11:54:07 CEST

2022-08-15 11:54:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Útboð LSS 39 0303


Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum LSS 39 0303 miðvikudaginn 17. ágúst 2022. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 2.000 milljónir króna að markaðsvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að fullu eða hluta, eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

LSS 39 0303                           
Lokagjalddagi:                       3. mars 2039.
Endurgreiðslur:                      Verðtryggðar jafnar hálfsárslegar afborganir.
Nafnvextir:                               Fastir vextir 1,00%.
Grunnvísitala:                         Verðtryggt með vísitölu neysluverðs til verðtryggingar (VNV) 3. mars 2022, gildi hennar er 518,30.
Einingar:                                  1 kr. rafbréf.

Útboðsfjárhæð:                      2.000.000.000 (tvöþúsund milljónir króna).
Þóknun:                                   Lánasjóðurinn greiðir 0,15% þóknun
Tilboð:                                       Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar og  tilboðsfjárhæð.
Fyrirkomulag:                       “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að fullu eða hluta, eða hafna þeim öllum.  Heimilt er að afturkalla eða breyta tilboði með sama hætti og tilboðum er skilað inn, sé það gert fyrir lok útboðsfrests.

Uppgjör sölu:                          Mánudaginn 22. ágúst 2022.

Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 17. ágúst 2022 til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið utbod@lanasjodur.is

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi.