|
|||
2008-10-21 14:34:17 CEST 2008-10-21 14:35:17 CEST REGULATED INFORMATION SPRON Verðbréf hf. - FyrirtækjafréttirEndurhverf viðskipti SPRON við Seðlabanka ÍslandsÍ ljósi umfjöllunar um beiðni Seðlabanka Íslands um auknar tryggingar frá SPRON vegna endurhverfra viðskipta vill SPRON koma því á framfæri að félagið hefur átt takmörkuð viðskipti með skuldabréf annarra fjármálastofnana og hefur gert ráð fyrir því að aukinna trygginga yrði óskað. SPRON vill jafnframt koma því á framfæri að öll innlend greiðslumiðlun hefur um árabil farið í gegnum Seðlabanka íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands. |
|||
|