2014-07-07 16:25:35 CEST

2014-07-07 16:26:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Lækkun hlutafjár í Högum hf.


Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Högum hf. að nafnverði kr.
46.083.650 en á aðalfundi félagsins þann 5. júní sl. var samþykkt tillaga
stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins sem nemur eigin hlutafé og því
þannig eytt. 

Skráð hlutafé Haga hf. eftir lækkunina er að nafnvirði kr. 1.171.502.190 en var
fyrir lækkunina kr. 1.217.585.840 að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að
nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eftir
hlutafjárlækkunina á félagið engin bréf í sjálfu sér.