|
|||
2008-05-21 11:23:16 CEST 2008-05-21 11:27:28 CEST REGULATED INFORMATION Landsbanki Íslands hf. - FyrirtækjafréttirMoody's staðfestir lánshæfismatseinkunn Landsbankans sem A / P-1 / C- / StableAlþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur staðfest lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans sem A2, einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem P-1 og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem C-. Horfur eru stöðugar. Staðfesting Moody's fylgir í kjölfar endurmats á lánshæfi ríkissjóðs í Aa1 úr Aaa. Nánari rökstuðning Moody's má finna í fréttatilkynningu hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veita: Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J. Kristjánsson í s. 820 6399, og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340. |
|||
|