2012-02-24 21:59:49 CET

2012-02-24 22:00:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Eignabjarg hyggst selja að lágmarki 10% eignarhlut í Högum


Tilkynning frá Eignabjargi ehf. 24. febrúar 2012

Eignabjarg ehf., dótturfélag Arion banka hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu að
lágmarki 10% eignarhlut í Högum hf. Fjárfestingabankasvið Arion banka hefur
umsjón með sölu hlutanna, sem mun fara fram í lokuðu útboði í samræmi við b-lið
1. mgr. 50. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Er ráð fyrir því gert
að útboðinu ljúki fyrir 1. mars næstkomandi. 



Stærð þess eignarhlutar sem seldur verður, mun ráðast af verðtilboðum þeirra
fjárfesta sem leitað verður til, en núverandi eignarhlutur Eignabjargs nemur
19,3% í Högum. Fjármálaeftirlitið hefur staðfest að það geri ekki athugasemd
við að bankinn haldi eftir upp að 10% eignarhlut eftir söluna. 



Sátt bankans við Samkeppniseftirlitið varðandi yfirtöku bankans á 95,7%
hlutafjár í Högum er enn í gildi en samkvæmt samkomulagi við
Samkeppniseftirlitið ber bankanum að ljúka sölu á hinum yfirtekna hlut fyrir
30. júní næstkomandi. 







Nánari upplýsingar veita:

Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka í síma 856 7108

Halldór Bjarkar Lúðvígsson, framkvæmdastjóri Fjárfestingabankasviðs Arion banka
í síma 856 6541