2008-09-22 18:00:00 CEST

2008-09-22 18:00:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Bogi Nils Bogason ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group


Bogi Nils Bogason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
og tekur til starfa 10. október næstkomandi. 
Bogi Nils Bogason var endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG á árunum 1993-2004. 
Hann var framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group á árunum 
2004-2006 og hefur starfað sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Askar Capital frá
ársbyrjun 2007. 
Bogi Nils er fæddur árið 1969 og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og
löggiltur endurskoðandi. Hann er kvæntur Björk Unnarsdóttur, hjúkrunarfræðingi,
og eiga þau þrjú börn. 
Hlynur Elísson, sem verið hefur framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, mun
hverfa til annarra starfa innan félagsins.