|
|||
2009-04-02 18:15:04 CEST 2009-04-02 18:16:10 CEST REGULATED INFORMATION Icebank - FyrirtækjafréttirSparisjóðabanki Íslands hf. segir upp starfsfólki - Bankastjóri og aðstoðarbankastjóri láta af störfum - Nýr bankastjóri ráðinnSparisjóðabanki Íslands hf. hefur frá því að bankinn fékk heimild til greiðslustöðvunar þann 23. mars sl. sagt upp 37 starfsmönnum. Hjá bankanum munu starfa áfram 35 starfsmenn. Bankastjóri Sparisjóðabanka Íslands hf., Agnar Hansson, lét af störfum í vikunni. Sömuleiðis hefur aðstoðarbankastjóri bankans, Ólafur Ottósson, látið af störfum. Sveinn Andri Sveinsson, áður framkvæmdastjóri fjármála- og upplýsingatæknisviðs bankans, hefur verið ráðinn í starf bankastjóra. |
|||
|