|
|||
2008-10-10 17:30:47 CEST 2008-10-10 17:31:18 CEST REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - FyrirtækjafréttirKaupum á dótturfélögum Landsbankans riftEins og tilkynnt var 1. október síðastliðinn skrifuðu Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) og Landsbanki Íslands hf. (Landsbankinn) undir samkomulag um kaup Straums á meirihluta af erlendri starfsemi Landsbankans á sviði fyrirtækjaráðgjafar og verðbréfamiðlunar fyrir 380 milljónir evra, með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila í viðkomandi löndum. Um var að ræða 100% hlut í Landsbanki Securities (UK) Limited og Landsbanki Kepler og 84% hlut Landsbankans í Merrion Landsbanki. Hinn 7. október síðastliðinn tilkynnti Landsbankinn að Fjármálaeftirlitið (FME) hefði ákveðið að taka yfir vald hluthafafundar Landsbankans og víkja félagsstjórn í heild sinni frá störfum. Ennfremur að FME hefði skipað skilanefnd sem tæki við öllum heimildum stjórnar Landsbankans þegar í stað. Ennfremur tilkynntu stjórnvöld í Bretlandi hinn 8. október síðastliðinn að þau hefðu gripið til ráðstafana í því skyni að frysta eigur Landsbankans í Bretlandi. Ljóst er orðið að Landsbankinn er ekki í aðstöðu til að standa við ákvæði kaupsamningsins sem gerður var. Af þessum sökum hefur Straumur í dag tilkynnt Landsbankanum um riftun á kaupsamningnum. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi Sími: 858 6778 Netfang: olafur.gudnason@straumur.net |
|||
|