|
|||
2008-10-11 14:01:01 CEST 2008-10-11 14:01:18 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur hf. - Áætlaðar rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung 2008* Áætluð sala er 87 milljónir Bandaríkjadala, eykst um 6% frá sama tímabili í fyrra * Áætlaður rekstrarhagnaður er 15 milljónir Bandaríkjadala, eykst um 79% * Áætlaður hagnaður tímabilsins er 12 milljónir Bandaríkjadala, eykst um 480% frá sama tímabili í fyrra * EBITDA er áætluð 20 milljónir, eykst um 43% Á stjórnarfundi sem fór fram 10. október, var ákveðið að birta áætlaðar rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung. Þetta er gert vegna mjög óvenjulegra aðstæðna á fjármálamörkuðum og til þess að innherjar geti átt viðskipti. Unnið er að gerð uppgjörs félagsins fyrir þriðja ársfjórðung. Áætlaðar niðurstöður miðast við rauntölur fyrir júlí og ágúst og áætlun fyrir september. Undir liðnum aðrar rekstrartekjur eru 2 milljónir Bandaríkjadala, sem er árangurstengd greiðsla vegna sölunnar á sáraumbúðavörulínur félagsins fyrr á árinu. Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi fréttatilkynningu. |
|||
|