2009-02-11 17:23:22 CET

2009-02-11 17:24:22 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Auglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 0515


Mánudaginn 16. febrúar kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð útboðsins verður allt að 10.000 milljónum króna að nafnverði.

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 18. febrúar 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisvíxla: 

Flokkur	         
RIKV 09 0515

Gjalddagi	 
15.5.2009

Lánstími
3 mánuðir

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
fimmtudaginn 19. febrúar 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.