2024-07-25 17:51:00 CEST

2024-07-25 17:51:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Arion banki: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Vísað er til fréttatilkynningar frá Arion banka hf. sem birt var 9. júlí 2024, þar sem tilkynnt var að Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefði veitt bankanum heimild til að framkvæma endurkaup á eigin bréfum á Íslandi og á heimildarskírteinum útgefnum í Svíþjóð. Stjórnendur bankans hafa nú ákveðið að hefja endurkaup sem nema allt að 2,5 milljörðum króna í samræmi við þá heimild sem Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt bankanum og stjórn bankans hefur samþykkt. Arion banki hf. mun því nú kaupa allt að 19.232.600 hluti, fyrir allt að 2,5 milljarða króna (endurkaupaáætlunin), sem nemur um 1,315% af útgefnu hlutafé bankans.

Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar á Íslandi og í Svíþjóð. Mun Íslandsbanki hf. taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð Arion banka hf. Áætlunin tekur gildi á báðum mörkuðum þann 26. júlí 2024 og gildir til 12. mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á þessu tímabili. Markmið endurkaupa er að lækka hlutafé bankans í samræmi við arðgreiðslustefnu.

Heimilt verður að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,026% af útgefnum hlutum og allt að 18.848.600 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,289% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,315% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.450.000.000 kr. á Íslandi (samtals 2,5 milljarðar króna). Við upphaf endurkaupaáætlunarinnar á bankinn 46.607.505 eigin hluti sem jafngildir um 3,19% af útgefnum hlutum bankans.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður þannig háttað að kaup hvers dags í kauphöll Nasdaq Ísland og Nasdaq Stokkhólmi verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf eða SDR bankans á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast.

Í kauphöll Nasdaq Stokkhólmi mega kaup aðeins eiga sér stað innan þess verðbils sem gildir á Nasdaq Stokkhólmi, þar sem verðbilið nær frá hæsta kaupverði (e. best bid) til lægsta söluverðs (e. best offer) sem í gildi er og tekið saman hjá Nasdaq Stokkhólmi, allt í samræmi kafla H í viðbæti D við Reglubók fyrir útgefendur hlutafjár á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic sem tók gildi þann 1. janúar 2024.

Í kauphöll Nasdaq á Íslandi skal verð fyrir hvern hlut að hámarki samsvara hæsta verði í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Ísland, hvort sem hærra er, allt í samræmi við ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem lagagildi hefur á Íslandi.

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.