2024-04-29 18:25:56 CEST

2024-04-29 18:25:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 17


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 19. mars 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 20. mars 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 17. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 76.525.001 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
22/4/2410:16100.00076,257.625.0004.442.398
22/4/2411:39100.00075,507.550.0004.542.398
22/4/2414:08100.00075,507.550.0004.642.398
24/4/2410:59100.00077,007.700.0004.742.398
24/4/2413:22100.00077,007.700.0004.842.398
24/4/2415:16100.00077,007.700.0004.942.398
26/4/2410:49100.00077,007.700.0005.042.398
26/4/2414:03100.00077,007.700.0005.142.398
26/4/2415:046.58976,50504.0595.148.987
26/4/2415:1293.41176,507.145.9425.242.398
26/4/2415:24100.00076,507.650.0005.342.398
Samtals 1.000.000 76.525.0015.342.398


Reitir hafa nú keypt samtals 5.342.398 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 96,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 418.896.421 kr. sem samsvarar 83,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.550.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna.

Frá árslokum 2023, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 15.592.398 eigin hluti fyrir 1.260.396.421 kr.

Reitir eiga nú samtals 5.342.398 eigin hluti, eða um 0,75% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 706.207.602.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.