|
|||
2008-11-13 15:30:45 CET 2008-11-13 15:31:45 CET REGULATED INFORMATION Milestone ehf. - Fyrirtækjafréttir- Fall bankakerfisins á Íslandi - áhrif á MilestoneFall bankakerfisins á Íslandi svo og erfiðleikar á fjármálamörkuðum í heiminum hafa haft umtalsverð áhrif á efnahag Milestone eins og annarra fyrirtækja á Íslandi. Vegna veikingar krónunnar hafa skuldir félagsins aukist umtalsvert og verðlækkun eigna á Íslandi og um allan heim hafa leitt til lækkunar á virði eigna félagsins. Félagið á nú í viðræðum við stærsta lánveitanda sinn Nýja Glitnir um fjárhagslega endurskipulagningu á félaginu. Tillögur Milestone miða að því að vernda verðmæti eigna félagsins þannig að hagmunir allra lándrottna þess verði sem best tryggðir. Nánari upplýsingar veitir: Guðmundur Ólason forstjóri Milestone ehf. Sími 414 1800 |
|||
|