2022-12-08 17:08:55 CET

2022-12-08 17:08:57 CET


Islandic
Kvika banki hf. - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Kvika - Fjarskiptainnviðir hs. - Skráning skuldabréfaflokksins KFI 21 1


Kvika – Fjarskiptainnviðir hs., sjóður í rekstri Kviku eignastýringar, hefur birt lýsingu dagsetta 5. desember 2022. Lýsingin samanstendur af tveimur skjölum; útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda að skuldabréf í flokknum KFI 21 1 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og er viðhengd. Skuldabréfin verða tekin til viðskipta 9. desember 2022.

Seld voru skuldabréf að nafnvirði 5.452 m.kr.

Fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta. Lýsinguna má finna á heimasíðu útgefanda, 
https://www.kvikaeignastyring.is/sjodastyring/fagfjarfestasjodir/kvika-fjarskiptainnvidir-hs/. Jafnframt má nálgast lýsinguna á skrifstofu Kviku eignastýringar, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir Almar Ögmundsson, sjóðstjóri Kviku – Fjarskiptainnviða hs., í síma 861-4076 eða í tölvupósti á almar@kvikaeignastyring.is.

Viðhengi