|
|||
2009-02-12 17:08:10 CET 2009-02-12 17:09:11 CET REGULATED INFORMATION Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir- Í tilefni af umræðu um greiðslustöðvun Baugs skal áréttað að hún hefur ekki áhrif á rekstur HagaÍ tilefni af umræðu um greiðslustöðvun Baugs skal áréttað að hún hefur ekki áhrif á rekstur Haga. Hagar eru sjálfstætt félag, með sjálfstæðan rekstur og efnahag. Upplýsingar um rekstur og efnahag Haga eru aðgengilegar á vef Kauphallarinnar, þar sem ársreikningur félagsins er birtur og einnig upplýsingar um 6 mánaða uppgjör félagsins. Rekstur Haga hefur gengið ágætlega á yfirstandandi rekstrarári, sem lýkur nú í lok febrúar. Gera má ráð fyrir að afkoma félagsins fyrir fjármagnsliði og afskriftir verði betri en á því rekstrarári sem lauk í lok febrúar 2008. Þá var afkoma fyrir fjármagnsliði og afskriftir 2.906 milljónir króna. Fjármagnsliðir félagsins eru hinsvegar neikvæðir, m.a. vegna mikillar veikingar íslensku krónunnar, verðbólgu sem var langt umfram áætlanir og vegna afskrifta á fjárfestingum, sem að hluta til hafa komið fram í 6 mánaða uppgjöri félagsins, sem var birt í októbermánuði. Staða Haga er því sterk, hvort sem horft er á rekstur eða efnahag félagsins. |
|||
|