2014-11-28 13:10:53 CET

2014-11-28 13:11:54 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

VÍS - tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 13. mars 2014 var samþykkt að
heimila stjórn að kaupa á næstu fimm árum allt að 10% af hlutafé félagsins,
þ.e. að hámarki kr. 250.275.704 hluti að nafnverði. 

Þann 13. maí 2014 tók stjórn VÍS þá ákvörðun að framkvæma endurkaupaáætlun um
kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess.
Hámarksfjöldi hluta sem áætlun kvað á um að yrðu keyptir voru að nafnverði kr.
55.000.000 hlutir, en það jafngildir um 2,2% af útgefnu hlutafé félagsins.
Fjárhæð endurkaupanna skyldi þó aldrei vera hærri en kr. 500.000.000. Heimildin
gilti fram að aðalfundi félagsins 2015. Með tilkynningu til Aðalmarkaðar þann
24. nóvember 2014 var greint frá því að kaupum skv. fyrrgreindri
endurkaupaáætlun væri lokið. Þar var einnig greint frá því að samtals hefðu
verið keyptir kr. 55.000.000 hlutir að nafnverði í félaginu og að kaupverð
hinna keyptu hluta hefði numið samtals kr. 462.808.526 sem jafngildir um 2,2%
af útgefnu hlutafé félagsins. 

Stjórn VÍS hefur að nýju á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar
félagsins tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin
bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. 

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði
kr. 55.000.000 hlutir, en það jafngildir um 2,2% af útgefnu hlutafé félagsins.
Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 500.000.000  Heimildin
gildir fram að aðalfundi félagsins 2015. 

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af H.F. Verðbréfum hf. sem tekur allar
viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð
félaginu. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða
í samræmi við lög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. 

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verður að
hámarki 3.000.000 hlutir sem er 9,3% af meðaltali daglegra viðskipta með
hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í október 2014. 

Verð fyrir hvern hlut getur að hámarki verið síðasta skráða dagslokagengi áður
en kaup fara fram og hæsta fyrirliggjandi óháða boð í þeim viðskiptakerfum sem
kaupin fara fram. 

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og
í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is