|
|||
![]() |
|||
2015-04-21 20:17:41 CEST 2015-04-21 20:18:42 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - Niðurstöður hluthafafundaNiðurstöður aðalfundar Regins hf. 21. apríl 2015Aðalfundur Regins hf. var haldinn 21. apríl 2015 í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Björtuloftum, Austurbakka 2, 101 Reykjavík. 1. Ársreikningur: Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2014. 2. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2014: Aðalfundur samþykkti að ekki yrði greiddur arður á árinu 2015, en að öðru leyti vísast til ársreikningsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum félagsins á árinu. Hagnaður verður fluttur til næsta árs. 3. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu: Aðalfundur samþykkti fram lagða starfskjarastefnu fyrir félagið sem er óbreytt frá fyrra ári. 4. Heimild til kaupa á eigin hlutum: Aðalfundur samþykkti tillögu Gildis lífeyrissjóðs um kaup á eigin hlutum. Um efni tillögu vísast til breytingatillögu frá Gildi lífeyrissjóði dags. 7. apríl 2015 sem finna má á heimasíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestar 5. Breyting á samþykktum félagsins. Aðalfundur samþykkti breytingu á samþykktum félagsins. Um efni breytinga vísast til breytingatillögu frá Gildi lífeyrissjóði dags. 7. apríl 2015 sem finna má á heimasíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestar 6. Kosning félagsstjórnar: Eftir niðurstöðu margfeldiskosningar var ljóst að kjörin stjórn uppfyllti ekki skilyrði laga um kynjahlutfall. Í framhaldi af þeirri niðurstöðu dró Jón Steindór Valdimarsson framboð sitt til stjórnar til baka. Nýkjörin aðalstjórn Regins hf. er því skipuð eftirfarandi einstaklingum: Albert Þór Jónsson, fjárfestir, Cand. Oecon Benedikt K. Kristjánsson, sölu og þjónustufulltrúi Bryndís Hrafnkelsdóttir, viðskiptafræðingur, Cand. Oecon. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, lögmaður og MBA. Tómas Kristjánsson, viðskiptafræðingur, Cand.Oecon/MBA Eftirtaldir voru sjálfkjörnir í varastjórn: Finnur Reyr Stefánsson, hagfræðingur og MBA Hjördís D. Vilhjálmsdóttir, hagfræðingur 7. Kosning endurskoðanda: Aðalfundur samþykkti að KPMG ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík, yrði endurkjörið endurskoðunarfyrirtæki félagsins. 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil: Aðalfundur félagsins samþykkti óbreytta þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar frá síðasta ári. |
|||
|