2009-02-19 16:19:56 CET

2009-02-19 16:21:19 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Greiðslustöðvun Kaupþings Banka hf. framlengd til 13. nóvember 2009



Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag beiðni skilanefndar Kaupþings
Banka hf. um framlengingu heimildar til greiðslustöðvunar til 13.
nóvember 2009.

Ólafur Garðarsson hrl., aðstoðarmaður bankans á
greiðslustöðvunartímabili hélt kynningarfund fyrir lánardrottna þann
5. febrúar sl. Á fundinum var lögð fram skýrsla um framvindu mála frá
því að bankinn leitaði til Fjármálaeftirlitsins þann 9.október 2008.
Jafnframt voru þar kynntar fjárhagsupplýsingar sem og bráðabirgðamat
á eignum bankans sem miðaðist við 15.nóvember 2008. Gögn sem lögð
voru fram á fundinum ásamt fundargerð eru öllum aðgengileg á
upplýsingavef bankans, www.kaupthing.com. Aðstoðarmaður bankans í
greiðslustöðvun kynnti sérstaklega áform skilanefndar og
aðstoðarmanns um að óska eftir því við héraðsdóm að heimild Kaupþings
til greiðslustöðvunar verði framlengd um níu mánuði.

Eitt af meginverkefnum skilanefndar og starfsmanna hennar hefur verið
að vernda eignir og verja hagsmuni lánardrottna eftir fremsta megni.
Það er álit skilanefndar og aðstoðarmanns að framhald
greiðslustöðvunar sé forsenda þess að unnt sé að sinna þeim verkefnum
sem unnið er að innan bankans með það að markmiði að gæta hagsmuna
kröfuhafa, hámarka endurgreiðsluhlutfall krafna og tryggja jafnræði á
milli kröfuhafa.

Bankinn mun mánaðarlega setja saman skýrslu til kröfuhafa sem verður
öllum aðgengileg á upplýsingavef bankans, www.kaupthing.com, þar sem
kröfuhöfum og öðrum gefst tækifæri á að fylgjast með þeim
meginskrefum sem stigin hafa verið og þeim árangri sem náðst hefur
frá útgáfudegi síðustu skýrslu.

Frekari upplýsingar veitir:
Nafn: Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings Banka
hf.
Netfang: steinar@icelaw.is
Nánari upplýsingar um Kaupþing Banka má finna á vef bankans,
www.kaupthing.com