2011-12-19 15:00:07 CET

2011-12-19 15:01:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HS Orka hf - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða gerðardóms


Fréttatilkynning

                   HS Orka hefur fengið niðurstöðu gerðardóms

Reykjanesbæ, 19. desember 2011

HS Orka hefur nú fengið í hendur niðurstöðu úr gerðardómsmáli varðandi gildi
orkusölusamnings milli HS Orku og Norðuráls Helguvík en samkvæmt samningnum
myndi HS Orka afhenda orku til nýrrar álverksmiðju sem Norðurál er að reisa í
Helguvík. 

Niðurstöður gerðardómsins voru ekki einhliða þar sem báðir aðilar fengu jákvæða
niðurstöðu í ákveðnum atriðum kröfugerðar sinnar. Þó úrskurðurinn kveði á um
ákveðna afhendingarskyldu HS Orku til hins nýja álvers er sú afhendingarskylda
háð því að uppfyllt verði nokkur skilyrði sem gerðardómurinn úrskurðaði að ekki
hefðu verið uppfyllt. Gerðardómurinn hafnaði kröfu Norðuráls um skaðabætur. 

HS Orka mun vinna með Norðuráli að því að ná ásættanlegri niðurstöðu varðandi
þau atriði sem upp hafa komið með þessum úrskurði.