|
|||
2009-09-03 11:50:08 CEST 2009-09-03 11:52:04 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - FyrirtækjafréttirÖssur hefur gert samning um viðskiptavakt í kauphöll NASDAQ OMX í KaupmannahöfnÖssur hf. hefur í dag gert samning við Nordea Markets (deild innan Nordea Bank Danmark A/S) um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Samningnum er ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins. Samkvæmt samningnum mun Nordea Markets setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins alla viðskiptadaga í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Munur milli kaup- og söluverðs má ekki fara yfir 4,0%. Samningurinn mun taka gildi 4. september 2009, þegar hlutabréf félagsins hafa verið skráð opinberlega og tekin til viðskipta í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar veita: Jón Sigurðsson, forstjóri, sími 515 1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044 |
|||
|