2016-12-01 13:00:00 CET

2016-12-01 13:00:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – september 2016


Jákvæð þróun í níu mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – september 2016
var afgreiddur í borgarráði í dag fimmtudaginn 1. desember. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.042 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að
hún yrði jákvæð um 67 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 975 mkr. betri en
gert var ráð fyrir. Betri rekstrarniðurstaða skýrist að stærstum hluta af lægri
rekstrarkostnaði, sem var 889 mkr lægri en áætlun gerði ráð fyrir og meiri
þjónustutekjum sem skiluðu 408 mkr umfram áætlun á fyrstu níu mánuðum ársins. 
Á móti hækkuðu lífeyrisskuldbindingar 749 mkr umfram áætlun á tímabilinu. 
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.612 mkr en áætlun gerði
ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 1.034 mkr eða 578 mkr betri en áætlun gerði
ráð fyrir. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um
17.549 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 8.466 mkr. 

Rekstrarniðurstaðan er því 9.083 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu
ástæður fyrir betri afkomu má rekja annars vegar til hærri tekjufærðra
matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og hins vegar lægri
fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna hagstæðrar gengisþróunar,
gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu og
lægri verðbólgu en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða fyrir
fjármagnsliði var jákvæð um 14.652 mkr sem er 716 mkr betri niðurstaða en
áætlun gerði ráð fyrir. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok
tímabils 528.359 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 292.200 mkr og
eigið fé var 236.159 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.166 mkr. 
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 44,7% en var 42,9% um
síðustu áramót. 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. 

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða
meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til
fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur,
Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf.,
Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og
Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. 



Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321.