2016-11-14 10:00:00 CET

2016-11-14 10:00:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 45 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.000.000 eigin hluti að
kaupverði 42.520.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning   Tími  Keyptir hlutir  Viðskiptaverð (gengi)  Kaupverð (kr.)
------------------------------------------------------------------------
------------------------------------------------------------------------
 8.11.2016  14:17         583.902                  14,20       8.291.408
 8.11.2016  14:19         416.098                  14,20       5.908.592
------------------------------------------------------------------------
 9.11.2016  13:51       1.000.000                  14,15      14.150.000
------------------------------------------------------------------------
 9.11.2016  10:33       1.000.000                  14,17      14.170.000
------------------------------------------------------------------------
Samtals                 3.000.000                             42.520.000
------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016. 

Sjóvá átti 39.736.697 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum
42.736.697 eigin hluti eða sem nemur 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu. 

Sjóvá hefur keypt samtals 18.043.814 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem
nemur 1,15% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra
243.381.120 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793
hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má
heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í
gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars
2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um
hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og
markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í
endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ 



Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000