|
|||
![]() |
|||
2017-10-26 17:09:16 CEST 2017-10-26 17:09:16 CEST SÄÄNNELTY TIETO Skeljungur hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumSkeljungur: Breytt skipulag Skeljungs hf.- Samstæðan rekin sem ein heild með áherslu á þróun og framrás. - Fækkað í framkvæmdastjórn Skeljungs á Íslandi og hagrætt þvert á félagið. - Stjórnunarkostnaður samstæðunnar lækkar. - Áætluð kostnaðarlækkun nemur um 160 milljónum króna á ársgrundvelli. - Einskiptiskostnaður vegna skipulagsbreytinganna nemur um 110 milljónum króna. NÝTT SKIPURIT SAMSTÆÐUNNAR Stjórn Skeljungs hefur að tillögu forstjóra ákveðið að breyta skipuriti félagsins. Breytingarnar eru í samræmi við þær skipulagsáherslur sem kynntar voru í haust, þar sem markmiðið var að tryggja betur samþættingu í starfsemi Skeljungs á Íslandi og í Færeyjum, auka skilvirkni í rekstrinum og styðja við sölu til erlendra skipa á N-Atlantshafssvæðinu. Þá mun breytt skipulag gera æðstu stjórnendum betur kleift að vinna að sameiginlegum verkefnum og framþróun samstæðunnar. Yfirstjórn samstæðunnar er leidd af Hendrik Egholm, forstjóra félagsins. Fulltrúar rekstrarstoða samstæðunnar eru Már Erlingsson, aðstoðarforstjóri Skeljungs, Johnni Poulsen, framkvæmdastjóri Magn, og Leif Hovgaard, yfirmaður alþjóðasölu. Þvert á rekstrarstoðirnar starfa svo Ingunn Agnes Kro, yfirmaður lögfræðimála og regluvörslu, og Benedikt Ólafsson, fjármálastjóri samstæðunnar. HAGRÆTT Í REKSTRI Samhliða er skipurit Skeljungs á Íslandi einfaldað. Tvö tekjusvið félagsins - einstaklingssvið og fyrirtækjasvið - verða sameinuð í eitt sölusvið, leitt af Þórði Guðjónssyni. Í stað skrifstofu forstjóra verður til nýtt svið, skrifstofu- og samskiptasvið, undir Ingunni Agnes Kro. Áfram sitja Benedikt Ólafsson sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og Már Erlingsson sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs en hann verður jafnframt aðstoðarforstjóri Skeljungs á Íslandi. Við breytingarnar mun störfum í höfuðstöðvum félagsins fækka. Eins mun stjórnunarkostnaður í Færeyjum lækka. Auk þess að skerpa áherslur í rekstri samstæðunnar munu ofangreindar breytingar lækka rekstrarkostnað Skeljungs um 160 milljónir króna á ársgrundvelli. Einskiptiskostnaður vegna skipulagsbreytinganna nemur um 110 milljónum króna. Nánari upplýsingar veitir Hendrik Egholm, forstjóri, s: 840-3002, fjarfestar@skeljungur.is. [] |
|||
|