2013-03-19 15:12:35 CET

2013-03-19 15:13:36 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Ársreikningur

Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2012


Góð staða Garðabæjar

Rekstrarniðurstaða  Garðabæjar árið 2012 var jákvæð um 517,6 milljónir króna.
Þetta er mun betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir en rekstrarafgangur
samkvæmt henni var 231 milljón króna.  Ársreikningur fyrir árið 2012 var lagður
fram til áritunar í bæjarráði í dag. 

Rekstrartekjur ársins námu 7.316 m.kr. og rekstrargjöld með fjármagnsliðum voru
6.798,4 m.kr. Niðurstaðan er því jákvæð sem nemur 517,6 m.kr. Útsvar var á
síðasta ári, og er enn í sameinuðu sveitarfélagi, 13,66% sem er með því lægsta
sem gerist á landinu. 



Fræðslumál eru stærsti málaflokkurinn

Stærsti málaflokkurinn í rekstri sveitarfélagsins er fræðslu- og uppeldismál en
til hans var á árinu varið 3,3 milljörðum króna  sem er ríflega helmingur
skatttekna.  Næst stærsti málaflokkurinn er íþrótta- og æskulýðsmál , en til
þeirra var varið 799 milljónum og þar á eftir kemur félagsþjónustan. 



Nýtt hjúkrunarheimili

Framkvæmdir síðasta árs námu samtals um 1.562 milljarði króna sem er í mjög
góðu samræmi við fjárhagsáætlun sem  gerði ráð fyrir 1.536 milljónum.  Þar af
var 962 milljónum varið til framkvæmda við nýtt hjúkrunarheimili á Sjálandi sem
verður tekið í noktun í apríl 2013. 



Fjárhagslegur styrkur

Allar kennitölur í rekstri staðfesta fjárhagslegan styrk Garðabæjar.
Veltufjárhlutfall er 0,82, eiginfjárhlutfall  61% og skuldahlutfall var 90%.
Skuldir og skuldbiningar í árslok námu 6.616 milljónum kr. en ekkert nýtt
langtímalán var tekið á árinu.  Veltufé frá rekstri er 1.221 m.kr. en var 1.181
m.kr. árið 2011. Handbært fé í árslok var 442 milljónir. 

Íbúar Garðabæjar voru 11.450 1. desember 2012 samanborið við 11.270 árið áður
sem gerir íbúafjölgun um 1,6%. 

Ársreikningur Garðabæjar verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 21.
mars og til síðari umræðu  4. apríl. 



Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í síma:  820 8541, gunnar@gardabaer.is