2009-01-14 12:59:00 CET

2009-01-14 13:00:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir

- Lánasjóður sveitarfélaga - Útboð LSS150224


Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á LSS150224.
Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 2 milljarðar
króna að nafnvirði. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka
útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Eftirfarandi bönkum og verðbréfafyrirtækjum hefur verið boðið að gera tilboð:
Byr Sparisjóður, H.F. Verðbréf, Íslensk verðbréf, Jöklar Verðbréf, NBI, Nýi
Glitnir, Nýi Kaupþing, MP Banki, Saga Capital Fjárfestingarbanki,
Sparisjóðabanki Íslands, SPRON Verðbréf, Straumur Fjárfestingarbanki og
Virðing. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:


Útboðsfjárhæð:    2.000.000.000 (tveir milljarðar króna).

Lágmarkstilboð:   100.000.000 (hundrað milljónir króna)

Lánstími:         Til 15. febrúar 2024.

Endurgreiðslur:   Verðtryggðar jafnar hálfsárslegar greiðslur.

Nafnvextir:       Fastir vextir 3,75%.

Grunnvísitala:    Verðtryggt með vísitölu neysluverðs (VNV) október 2008, gildi
                  hennar er 312,8. 

Einingar:         1 kr. rafbréf.

Þóknun:           Lánasjóðurinn greiðir 0,5% þóknun.

Tilboð:           Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar,
                  tilboðsfjárhæð og „hreint“ verð án þóknunar. 

Fyrirkomulag:     “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu
                  ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Lánasjóðurinn áskilur sér
                  rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka
                  hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum 

Uppgjör sölu:     Miðvikudaginn 21. janúar 2009.


Tilboð skulu berast fyrir kl. 17:00, föstudaginn 16. janúar 2009 til Lánasjóðs
sveitarfélaga, b.t. Óttars Guðjónssonar, Borgartúni 30, 105 Reykjavík, Íslandi. 


Einnig má senda tilboð í tölvupósti til ottar@samband.is eða með myndsendi í
515-4903 á tilboðsdegi. 

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 09:30 mánudaginn 19. janúar 2009.