2017-04-27 18:05:32 CEST

2017-04-27 18:05:32 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Tilkynning frá stjórn Kviku banka hf.


Tilkynning frá stjórn Kviku banka hf.
27. apríl 2017

Sigurður Atli Jónsson forstjóri Kviku hefur tilkynnt stjórn bankans ákvörðun
sína um að láta af störfum.

Sigurður Atli hefur verið forstjóri Kviku frá 1. júlí 2011, en bankinn hét þá MP
banki. Hann leiddi farsællega uppbyggingu bankans, sem fjármagnaður var með nýju
hlutafé vorið 2011.

Sigurður Atli leiddi samruna MP banka og Straums árið 2015. Samruninn tókst
framar öllum vonum á þessum tíma undir stjórn og leiðsögn Sigurðar Atla. Nýr,
sjálfstæður og sérhæfður fjárfestingabanki varð til undir nafni Kviku.

Mjög góð samlegðaráhrif náðust á fyrstu sex mánuðum eftir sameiningu. Afkoma
Kviku árið 2016 nam 2 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 34,7%. Sigurður
Atli hefur stýrt bankanum í þá sterku stöðu sem hann er í og skilar mjög góðu
búi, en hagnaður Kviku á fyrstu þremur mánuðum þessa árs er um 400 milljónir
króna.

Sigurður Atli:
"Það er ánægjulegt hve vel hefur tekist til að búa til nýjan íslenskan banka.
Þróun hans hefur tekist einstaklega vel. Einstakur árangur bankans grundvallast
á skýrri framtíðarsýn um að vera sjálfstæður og sérhæfður fjárfestingabanki,
samþættri stefnulegri áætlun, skipulegri uppbyggingu fyrirtækjamenningar og
umfram allt frábæru starfsfólki.
Það er ljóst að þetta verkefni hefur tekist einstaklega vel og framtíð bankans
er afar björt. Ársuppgjör Kviku í fyrra og afkoman núna á fyrsta fjórðungi eru
til vitnis um það. Slíkar niðurstöður gera mig óneitanlega stoltan sem forstjóra
og leiðtoga þessa góða hóps fólks sem ég hef haft ánægju af að starfa með. Ég
vil þakka frábærum viðskiptavinum og fyrirtækjum í klasasamfélagi Kviku fyrir
góð samskipti og gott samstarf.

Skýr markmið varpa ljósi á tækifærin. Núna er rétti tíminn fyrir mig til að gera
breytingar. Ég óska starfsfólki Kviku, stjórn og hluthöfum allra heilla í
framtíðinni".

Stjórn Kviku sér á eftir Sigurði Atla og þakkar honum fyrir vel unnin störf í
þágu hluthafa, viðskiptavina og starfsfólks Kviku. Stjórn metur mikils forystu
hans í að gera Kviku að traustum og öflugum fjárfestingabanka í fremstu röð og
þakkar honum traust og heilsteypt samstarf.

Virðingarfyllst,

Þorsteinn Pálsson
Formaður stjórnar Kviku banka hf.



[]