|
|||
2008-05-23 12:57:00 CEST 2008-06-03 16:31:33 CEST SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir- Undirritun samninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaðiÍ morgun var skrifað undir samninga hjá Seðlabanka Íslands í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé og efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði. Frá 1. júní 2008 hafa sjö fjármálastofnanir heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þær eru: Glitnir, Icebank, Kaupþing, Landsbanki Íslands, MP Fjárfestingarbanki, Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki og Saga Capital Fjárfestingarbanki. Helstu atriði samningsins eru þessi: •Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum ríkissjóðs. •Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að verðbréfalánum sem Seðlabanki Íslands veitir fyrir hönd ríkissjóðs. •Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 milljónir króna að nafnverði. •Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisverðbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi. •Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum. •Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 600 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða þann dag. •Samningurinn gildir frá 1. júní 2008 til 31. maí 2009. Þóknun til allra aðalmiðlara ríkisverðbréfa á samningstímanum verður samtals 160 m.kr. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur aðalmiðlara ríkisverðbréfa. |
|||
|