2012-04-12 14:57:23 CEST

2012-04-12 14:58:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Ársreikningur

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2011


Veltufé frá rekstri 2,6 milljarðar

Niðurgreiðsla skulda Kópavogsbæjar umfram lántökur var rúmlega 1.650 milljónir
króna á síðasta ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársreikningi
Kópavogsbæjar fyrir árið 2011. Hann var lagður fram á bæjarráðsfundi í morgun
og samþykktur til afgreiðslu í bæjarstjórn. Fyrri umræða er væntanleg 24.
apríl. 

Í langtímaáætlunum er stefnt að því að greiða niður skuldir bæjarins um einn
milljarð á ári á næstu árum og náðist það markmið á síðasta ári og vel það.
Annað markmið er að veltufé frá rekstri verði að minnsta kosti á bilinu 1,5 til
2 milljarðar á ári. Það náðist einnig en veltufé frá rekstri samstæðu
Kópavogsbæjar var um  2,6 milljarðar. 

Í ársreikningnum kemur fram að rekstrarafkoma samstæðu hafi verið neikvæð um
751 milljón króna. Neikvæð afkoma skýrist fyrst og fremst af reiknuðum stærðum
eins og gengistapi sem var 523 milljónir, meiri verðbólgu en áætlað var og
aukinni gjaldfærslu á lífeyrisskuldbindingum. 

Fleiri lóðum var á síðasta ári úthlutað en skilað og er það viðsnúningur frá
síðustu árum. Hagnaður af lóðaúthlutunum nam 335,3 milljónum króna. 

Íbúum í Kópavogi heldur áfram að fjölga og voru þeir komnir upp í 31.139 í
desember 2011. Er það um 1,4% fjölgun frá fyrra ári. 



Nánari upplýsingar: Arna Schram upplýsingafulltrúi í síma: 696 0663