2010-08-31 10:57:38 CEST

2010-08-31 10:58:40 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur

Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2010


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. 
Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar
verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi
sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi  sveitarfélaga. 

Á árinu 2009 voru lífeyrisskuldbindingar sambandsins og Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja settar inn í ársreikninginn. Skuldbindingin nam 78,8 milljónum króna
í ársbyrjun en 73,7 milljónum króna í árslok. 
Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla 
Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við
ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið
fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin 
bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta
hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga
og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok ársins 2009 námu eftirstöðvar
lánsins 289,5 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2009 nam rúmum 9,4 milljónum kr. og eigið fé
í lok ársins 2009 nam 40,4 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi
sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.