2010-08-31 12:11:11 CEST

2010-08-31 12:12:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Ársreikningur

Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. jan. - 30. jún. 2010


Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og
fagfjárfestasjóði hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2010.
Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2010
●  Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2010 er 124
   m.kr. samanborið við 164 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður. 

●  Rekstrargjöld námu 328 m.kr. samanborið við 386 m.kr. fyrir sama tímabil árið
   áður og lækkuðu um 14,9%.
●  Hreinar rekstrartekjur námu 479 m.kr. samanborið við 579 m.kr. fyrir sama
   tímabil árið áður, drógust saman um 17,1%.
●  Eigið fé 30. júní 2010 nam 1.424 m.kr. en var 1.300 m.kr. í ársbyrjun.

●  Heildareignir félagsins 30. júní 2010 námu 3.010 m.kr. en voru 3.074
   m.kr. í árslok 2009. 

●  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
   fjármálafyrirtæki, var 132,8% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera
   lægra en 8,0%. 

●  Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 126.837 m.kr. í lok
   júní samanborið við 110.105 m.kr. í árslok 2009. 

●  Íslandssjóðir hf. sjá um stýringu og rekstur á 17 sjóðum, en einnig sér
   félagið um stýringu á einum verðbréfasjóði í Glitnir Asset Management S.A. í
   Lúxemborg. Heildareignir í stýringu Íslandssjóða hf. í Lúxemborg fyrstu 6
   mánuðina námu 18.485 m.kr. í stað 20.404 m.kr. um áramót. 

●  Í lok júní sl. voru fimm sjóðir í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Um er að ræða
   fyrirtækjaskuldabréfasjóðina Sjóð 1 og Sjóð 11 ásamt erlendu
   peningamarkaðssjóðunum í NOK, EUR og USD. Frá upphafi slitameðferðar þessara
   fimm sjóða hafa verið greiddar út alls 21.800 milljónir króna til
   hlutdeildarskírteinishafa.
●  Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
   árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning
   verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í
   samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar
   eru af Fjármálaeftirlitinu.
●  Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. en við könnun kom
   ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af
   afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2010.

Sjá viðhengi.