|
|||
![]() |
|||
2015-11-19 16:14:48 CET 2015-11-19 16:15:49 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirStandard and Poor’s staðfestir lánshæfiseinkunn LandsbankansAlþjóðlega matsfyrirtækið Standard and Poor's (S&P) hefur í dag staðfest mat sitt á lánshæfi Landsbankans. Lang- og skammtíma lánshæfiseinkunn Landsbankans er BBB-/A-3, með jákvæðum horfum. Að mati S&P hefur áhætta í bankarekstri á Íslandi minnkað, lánasöfn bankanna batnað og útlit er fyrir um 3% hagvöxt hér á landi á næstu tveimur árum. S&P benda á að væri fjármagnshöftum aflétt án mótvægisráðstafana, gæti það leitt til efnahagserfiðleika hér á landi og þar með til aukinnar áhættu í rekstri íslensku bankanna. Nýlegar yfirlýsingar um hvernig standa eigi að afléttingu hafta, sýni á hinn bóginn að dregið hafi úr hættu á slíku. S&P telja að stjórnvöld muni áfram vinna af skynsemi að afléttingu fjármagnshafta, þannig að komist verði hjá merkjanlegum áhrifum á íslenskan efnahag. Skýrslur S&P eru aðgengilegar á vef Landsbankans: https://bankinn.landsbankinn.is/fjarfestar/fjarmognun/lanshaefismat/ Frekari upplýsingar veitir: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7328 |
|||
|