|
|||
2015-11-19 16:26:34 CET 2015-11-19 16:27:35 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirÚtboð Arion CBI 21 og ARION CBI 29 - 26. nóvemberArion banki verður með útboð á sértryggðum skuldbréfaflokkum Arion CBI 21 og ARION CBI 29 þann 26. nóvember næstkomandi. Arion banki hefur gefið út sértryggð skuldabréf að fjárhæð 21.900 milljónir króna á þessu ári, þar af hefur bankinn selt skuldabréf til fjárfesta fyrir 19.020 milljónir króna en skuldabréf að nafnvirði 2.880 milljónir króna eru í eigu Arion banka og hafa verið gefnar út til að uppfylla samninga um viðskiptavakt við Landsbankann hf., Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. Arion banki uppfærir jafnframt útgáfuáætlun sína fyrir árið 2015. Er nú gert ráð fyrir að heildarfjárhæð sértryggðra skuldabréfa sem sem seld verða til fjárfesta á árinu 2015 fari yfir 20 milljarða króna. Í áður birtri útgáfuáætlun var stefnt að útgáfu sértryggðra skuldabréfa fyrir 10-20 milljarða króna. Ekki eru fyrirhuguð frekari útboð á sértryggðum skuldabréfum Arion banka á árinu 2015. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|