|
|||
2014-08-26 17:54:25 CEST 2014-08-26 17:55:27 CEST REGULATED INFORMATION Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - ÁrsreikningurLeiðrétting - Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - Árshlutauppgjör júní 2014 - Frétt birt 2014-08-22 16:30:36Leiðrétting: Eftir birtingu á árshlutareikningi Veðskuldabréfasjóðs Virðingar fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2014 komu fram mistök í texta í síðustu málsgrein skýrslu stjórnar. Þess ber að geta að þessi tilkynning vegna leiðréttingar á eingöngu við um texta í skýrslu stjórnar og hefur leiðréttingin ekki með uppgjörið sjálft að gera. Á stjórnarfundi Rekstrarfélags Virðingar var árshlutareikningur sjóðsins samþykktur en rangs sjóðs var getið í þeirri skýrslu er stjórnin ritaði undir. Það sem leiðrétt er: Stjórn Fagfjárfestasjóðsins ORK og framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Virðingar hf. staðfesta hér með árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið janúar - júní 2014 með undirritun sinni. Hið rétta er: Stjórn Veðskuldabréfasjóðs Virðingar og framkvæmdarstjóri Rekstrarfélags Virðingar hf. staðfesta hér með árshlutareikning sjóðsins fyrir tímabilið janúar - júní 2014 með undirritun sinni. Um er að ræða mistök í ritvinnslu. Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. -- Töluverðar breytingar urðu á rekstri sjóðsins á fyrri hluta ársins. -- Sjóðurinn hefur verið í rekstri hjá Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV undanfarin ár en í mars s.l. var gengið frá samningi um að reksturinn færðist alfarið til Rekstrarfélags Virðingar. -- Sjóðurinn hefur frá því í nóvember 2013 verið fullfjárfestur og eftir það hefur ekki verið um frekari fjárfestingar að ræða í veðskuldabréfum og sjóðurinn í raun kominn í endurgreiðluferli. Í maí gaf sjóðurinn út skuldabréfaflokk að nafnvirði 10,8 milljarða króna og voru bréfin afhent hlutdeildarskírteinishöfum í stað hlutdeildarskírteina auk þess sem eigendur hlutdeildarskírteina fengu ríflega 400 milljóna króna greiðslu í peningum vegna rúmrar lausafjárstöðu sjóðsins. -- Samkvæmt stefnu sjóðsins er laust fé greitt til eigenda, það fé er til komið vegna afborgana og uppgreiðslna á undirliggjandi veðskuldabréfum í eigu sjóðsins. Slíkt er heimilt samkvæmt skilmálum skuldabréfa sjóðsins á hverjum vaxtagjalddaga sem eru fjórir á ári. Það ákvæði í útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins VEDS1 14 01 nýtti sjóðurinn sér á vaxtagjalddaga bréfsins þann 15. ágúst síðastliðinn og greiddi 450 milljónir króna inn á höfuðstól skuldabréfanna og stefnt er á að greiða vaxtaauka á fyrsta vaxtagjalddaga ársins 2015. -- Hagnaður af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 470 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi. -- Heildareignir sjóðsins námu 10.847 milljónum króna í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi. -- Hrein eign sjóðsins var neikvæð um 25,5 milljónir króna samkvæmt efnahagsreikningi. Um er að ræða tímabundna stöðu vegna útborgunar til hlutdeildarskírteinishafa í tengslum við skuldabréfaútgáfuna en vegna jákvæðs vaxtamunar verður hrein eign sjóðsins orðin jákvæð fyrir lok október 2014. -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Í áritun endurskoðenda vegna könnunar kemur fram að ekkert bendi til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2014 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur. Nánari upplýsingar um árshlutareikning Veðskuldabréfasjóðsins Virðingar veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 585 6500. |
|||
|