|
|||
2014-04-01 17:55:21 CEST 2014-04-01 17:56:22 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - FyrirtækjafréttirTryggingamiðstöðin hf. - Endurnýjun samnings um viðskiptavakt.Tryggingamiðstöðin hf. og MP banki hf. hafa endurnýjað samning um viðskiptavakt. Samningurinn er efnislega óbreyttur frá fyrri samningi á milli félaganna, en gildistími hans er nú ótímabundinn með gagnkvæmum 14 daga uppsagnarfresti. Fjárhæð kaup- og sölutilboða MP banka hf. skal vera að lágmarki 500.000 hlutir á gengi sem MP banki hf. ákveður í hvert skipti. MP banka hf. er heimilt en ekki skylt að bjóða til kaups og/eða sölu fleiri hluti en að framan greinir. Verði tilboðum MP banka hf. tekið skal MP banki hf. setja fram annað tilboð innan 10 mínútna frá síðustu viðskiptum. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal vera 1,5%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem MP banki hf. er skuldbundinn til að eiga viðskipti skal samsvara 81.000.000 kr. að markaðsvirði. |
|||
|