2013-05-28 16:32:08 CEST

2013-05-28 16:33:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða Héraðsdóms í máli Haga hf. gegn Arion banka hf.


Í mars 2012 tók stjórn Haga hf. ákvörðun um að höfða dómsmál á hendur Arion
banka hf. til að fá skorið úr um stöðu sína vegna endurútreiknings á
gengistryggðum lánum félagsins hjá bankanum, sem greidd voru upp í október
2009. Hagar hf. höfðu áður fengið greiddar 515 milljónir króna vegna
endurútreiknings bankans en niðurstaða lögfræðiálits gaf til kynna að Hagar hf.
ættu enn frekari kröfu á hendur bankanum. 

Í dag birtist niðurstaða Héraðsdóms í málinu þar sem Arion banki hf. var
sýknaður af kröfu Haga hf. Í niðurlagi rökstuðnings héraðsdómara segir að Hagar
hf. leiti dóms sem myndi raska jafnvægi milli of- og vangreiðslu í
réttarsambandi málsaðila. Slík niðurstaða sé andstæð tilgangi almennra
meginreglna um endurgreiðslu ofgreidds fjár. 

Hagar hf. hafa ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.





Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.