2012-05-08 21:44:06 CEST

2012-05-08 21:45:09 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Flutningatölur apríl 2012


Sætanýting í millilandaflugi var 81,5% í apríl

Leiðrétting: "36 þúsund farþega" í fyrstu línu hefur verið breytt í "136 þúsund
farþega": 

Í apríl flutti félagið í millilandaflugi 136 þúsund farþega og voru þeir 19%
fleiri en í apríl á síðasta ári. Framboð í millilandaflugi var aukið um 19% og
sætanýting jókst um 2,0 prósentustig og var 81,5%.  Þetta er í fyrsta sinn í
sögu félagsins sem sætanýting fer yfir 80 prósentustig í aprílmánuði.  Farþegum
fjölgaði á öllum mörkuðum, en þó mest á N-Atlantshafsmarkaðnum þar sem
aukningin nam 34%. Aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam 13%. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 28 þúsund í apríl, sem er
lækkun um 4% á milli ára.  Sætanýting nam 68,2% og var óbreytt frá fyrra ári.
Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 14% m.v. apríl á síðasta ári, þar sem
fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar
jukust um 30% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um
20% frá apríl á síðasta ári. Herbergjanýting var 66,8%, eða 3 prósentustigum
hærri en í apríl 2011. 

INTERNATIONAL FLIGHTS           APR 12   CHG (%)     YTD 12   CHG (%)
---------------------------------------------------------------------
Number of Passengers (PAX)     136,554       19%    441,460       18%
Load Factor (%)                  81.5%   2.0 ppt      77.2%   3.7 ppt
Available Seat KM (ASK´000)    471,310       19%  1,570,045       13%
REGIONAL AND GREENLAND FLIGHS   APR 12   CHG (%)     YTD 12   CHG (%)
---------------------------------------------------------------------
Number of Passengers (PAX)      27,879       -4%    108,407        2%
Load Factor (%)                  68.2%  -0.1 ppt      70.0%   1.1 ppt
Available Seat KM (ASK´000)     13,532       -7%     49,348        0%
CAPACITY                        APR 12   CHG (%)     YTD 12   CHG (%)
---------------------------------------------------------------------
Fleet Utilization (%)            91.7%  -2.9 ppt      88.2%  -6.8 ppt
Sold Block Hours                 2,568      -14%     10,681       -7%
CARGO                           APR 12   CHG (%)     YTD 12   CHG (%)
---------------------------------------------------------------------
Available Tonne KM (ATK´000)    13,097       11%     49,790       10%
Freight Tonne KM (FTK´000)       7,279       30%     29,409       22%
HOTELS                          APR 12   CHG (%)     YTD 12   CHG (%)
---------------------------------------------------------------------
Available Hotel Room Nights     19,146       20%     73,228       15%
Sold Hotel Room Nights          12,793       26%     46,213       31%
Utilization of Hotel Rooms       66.8%   3.0 ppt      63.1%   7.8 ppt

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010