2009-02-17 17:24:08 CET

2009-02-17 17:25:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Auglýsing um útboð ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226


Föstudaginn 20. febrúar kl. 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisbréfa
með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónum króna samtals að
nafnverði í RIKB 13 0517 og RIKB 19 0226. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðið verður með hollensku sölufyrirkomulagi sem þýðir að öll samþykkt tilboð
bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 
Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. febrúar 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: 

Flokkur	          	
RIKB 13 0517

Lokagjalddagi
17.5.2013	 

Útistandandi fjárhæð
33.966 m.kr.

Lánstími
4,3 ár

Flokkur
RIKB 19 0226

Lokagjalddagi
26.2.2019	 

Útistandandi fjárhæð
44.669 m.kr.

Lánstími
10 ár

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h.
ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00
þriðjudaginn 24. febrúar.  Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur
fyrir þessi viðskipti er 25. febrúar 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og
markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.