2013-11-05 09:57:48 CET

2013-11-05 09:58:49 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Hluthafafundur HB Granda hf. verður haldinn þriðjudaginn 12. nóvember 2013


Hluthafafundur HB Granda hf. verður haldinn þriðjudaginn 12. nóvember 2013 í
matsal félagsins í Norðurgarði, Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00 



Dagskrá:



  1. Tillaga um staðfestingu á samruna við Laugafisk ehf.

Stjórn HB Granda hf. leggur til að hluthafafundurinn staðfesti með vísan til
124. gr. hlutafélagalaga  nr. 2/1995  samruna Laugafisks ehf. við félagið
samkvæmt samrunaáætlun félaganna, dags.  22. ágúst 2013, sem auglýst var í
Lögbirtingablaðinu 9. október 2013. 

Samruninn miðast við 1. júlí 2013 og tekur HB Grandi hf. við öllum rekstri,
eignum og skuldum, réttindum og skyldum félagsins í samræmi við samrunaáætlun.
Til að mæta samruna félaganna verður hlutafé félagsins aukið um kr. 15.625.000
og er skiptihlutfall hlutabréfanna 16 þannig að hver hluthafi í Laugafiski ehf.
fær 1 hlut í HB Granda hf. fyrir 16 hluti í Laugafiski ehf. 



  1. Tillaga um hlutafjárhækkun vegna kaupa á öllum hlutum í Vigni G. Jónssyni
     hf.

Stjórn HB Granda hf. leggur til að hluthafafundurinn samþykki að hækka hlutafé
félagsins um kr. 100.000.000 á síðasta sölugengi First North, 16,2. Verði hinu
nýja hlutafé öllu varið til að kaupa alla hluti í Vigni G. Jónssyni hf. 

Hluthafar Vignis G. Jónssonar hf. geta einir skrifað sig fyrir hinum nýju
hlutum. Þannig fylgir forgangsréttur hluthafa HB Granda hf. ekki þessari
hækkun. 

Áskriftarréttur að hækkuninni skal vera 4 vikur frá samþykkt tillögunnar og
skulu hinir nýju hlutir allir greiddir með hlutum í Vigni G. Jónssyni hf. 



Dagskrá og tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins að Norðurgarði 1, 101
Reykjavík og einnig á heimasíðu félagsins: www.hbgrandi.is 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent hluthöfum á fundarstað frá kl. 16:30

Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera
það skriflega.