2013-11-05 09:59:16 CET

2013-11-05 10:00:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Tillögur stjórnar lagðar fyrir hluthafafund 12. nóvember 2013



  1. Staðfesting á samruna við Laugafisk ehf.

Hluthafafundur í HB Granda hf. haldinn 12. nóvember 2013 staðfestir með vísan
til 124. gr. hlutafélagalaga  nr. 2/1995  samruna Laugafisks ehf. við félagið
samkvæmt samrunaáætlun félaganna, dags.  22. ágúst 2013, sem auglýst var í
Lögbirtingablaðinu 9. október 2013. 

Samruninn miðast við 1. júlí 2013 og tekur HB Grandi hf. við öllum rekstri,
eignum og skuldum, réttindum og skyldum félagsins í samræmi við samrunaáætlun. 
 Til að mæta samruna félaganna verður hlutafé félagsins aukið um kr. 15.625.000
og er skiptihlutfall hlutabréfanna 16 þannig að hver hluthafi í Laugafiski ehf.
fær 1 hlut í HB Granda hf fyrir 16 hluti í Laugafiski ehf. 



  1. Hlutafárhækkun vegna kaupa á öllum hlutum í Vigni G. Jónssyni hf.

Hluthafafundur í HB Granda hf. haldinn 12. nóvember 2013 samþykkir að hækka
hlutafé félagsins um kr. 100.000.000 á síðasta sölugengi First North, 16,2.
Verði hinu nýja hlutafé öllu varið til að kaupa alla hluti í Vigni G. Jónssyni
hf. 

Hluthafar Vignis G. Jónssonar hf. geta einir skrifað sig fyrir hinum nýju
hlutum. Þannig fylgir forgangsréttur hluthafa HB Granda hf. ekki þessari
hækkun. 

Áskriftarréttur að hækkuninni skal vera 4 vikur frá samþykkt tillögunnar og
skulu hinir nýju hlutir allir greiddir með hlutum í Vigni G. Jónssyni hf. 

Um hina nýju hluti gilda samþykktir félagsins og veita full réttindi í félaginu
 frá skráningardegi. 

Áætlaður kostnaður vegna hlutafjárhækkunarinnar er kr. 150.000 auk
stimpilgjalda 0,5% á útgefið hlutafé. 



Greinargerð.

Ofangreindar tillögur ganga báðar út á að hækka hlutafé félagsins til að mæta
kaupum á framleiðslufélögum sem falla vel að rekstri félagsins, styrkja hann og
auka verðmæti afurða þess. 

Þar sem tillögurnar gera ráð fyrir að hlutafjárhækkuninni verði varið til
skipta á hlutum í öðrum félögum eiga hluthafar félagsins ekki forgangsrétt að
hækkuninni sbr. ákvæðum 34. gr. hlutafélagalaga. Hluthafar í félögunum sem um
getur í tillögunum geta einir eignast hina nýju hluti, hluthafar í Laugafiski
ehf. við samrunan en hluthafar í Vigni G. Jónssyni hf. við áskrift á föstu
skiptagengi. 

Fyrir fundinum liggur sérfræðiskýrsla sbr. 1. mgr. 37. gr. hlutafélagalaga
vegna kaupa á hlutum í Vigni G. Jónssyni hf. 

Sölugengi hinna nýju hluta í HB Granda hf. miðast við sölugengi hlutabréfa á
þeim tíma sem samningar um viðskiptin áttu sér. Það sama á einnig við um mat á
virði hlutafjár Laugafisks og Vignis G. Jónssonar.