|
|||
![]() |
|||
2016-02-29 16:47:21 CET 2016-02-29 16:47:21 CET REGULATED INFORMATION Landfestar ehf. - ÁrsreikningurLandfestar ehf. : Ársreikningur Landfesta ehf. 2015+------------------------------------------------------------------------------+ | * Rekstrartekjur ársins 2015 námu 2.188 m.kr. (2014: 2.191 m.kr.). | | * Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir 2015 nam 1.758 | | m.kr.(2014: 1.686 m.kr.). | | * Heildarhagnaður ársins 2015 nam 2.064 m.kr. (2014: Tap um 42 m.kr.). | | * Handbært fé frá rekstri nam 1.045 m.kr. á árinu 2015. (2014: 724 m.kr.). | | * Bókfært virði fjárfestingareigna nam 24.373 m.kr. í árslok 2015. (2014: | | 22.740 m.kr.). | | * Matsbreyting var jákvæð á árinu 2015, nam 1.772 m.kr. (2014: Neikvæð um | | 582 m.kr.). | | * Vaxtaberandi skuldir námu 14.786 m.kr. í árslok 2015. (2014: 15.336 | | m.kr.). | | * Eiginfjárhlutfall nam 34,8%. (2014: 29,2%). | | * Hagnaður á hlut var 1,24. (2014: Tap á hlut 0,02). | | | | | |Ársreikningur Landfesta ehf. var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 29. | |febrúar 2016. Ársreikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og | |dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega | |reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa | |endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun. | | | |Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður á árinu 2015. | |Landfestar ehf. er eitt af sjö dótturfélögum í samstæðu Eikar fasteignafélags | |hf. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21, 21a og 26 og Álfheimar 74 (Nýi | |Glæsibær). Hægt er að nálgast ársreikning félagsins á www.landfestar.is (sem | |er jafnframt heimasíða móðurfélagsins). | | | |Landfestar ehf. gaf út skuldabréfaflokkinn LF 14 1 í júní 2014. Í desember | |2014 var skuldabréfaflokkurinn skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland. | |Staðfesting endurskoðanda á útreikningum útgefanda LF 14 1 á skilmálum | |skuldabréfaflokksins eru meðfylgjandi tilkynningu þessari. Samkvæmt | |staðfestingu endurskoðanda stóðust allir skilmálar skuldabréfaflokksins LF | |14 1 miðað við dagsetninguna 31.12.2015. | | | |Fjárhagsdagatal 2016 | |Hálfs árs uppgjör Landfesta ehf. 2016 verður birt í viku 35, 2016. | | | |Nánari upplýsingar veita: | |Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf., í síma | |861-3027 | |eða gardar@eik.is. | |Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf.,| |í síma 820-8980 eða lydur@eik.is. | +------------------------------------------------------------------------------+ [HUG#1990202] |
|||
|