2016-02-29 17:50:58 CET

2016-02-29 17:50:58 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Hampiðjan hf. - Annual report (is)

Hampiðjan - Ársreikningur 2015



Árið 2015



  -- Rekstrartekjur voru 58,9 m€ og jukust um 9,0% frá fyrra ári úr 54,0 m€.  
  -- Hagnaður var 9,9 m€ en var 7,7 m€ árið áður. 



Lykilstærðir



  -- EBITDA af reglulegri starfsemi var 9,3 m€ en 7,7 m€ árið áður.  
  -- Hlutdeild í hagnaði HB Granda var 4,0 m€ en var 3,2 m€ árið áður.
  -- Heildareignir voru 102,5 m€ en í lok fyrra árs var efnahagurinn 95,1 m€.
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 21,7 m€ en voru 22,8 m€ árið áður.
  -- Eiginfjárhlutfall var 69% en 66% árið áður.
  -- Meðalfjöldi starfsmanna á árinu var 559 en var 522 árið þar á undan.



Rekstur



Rekstrartekjur samstæðunnar voru 58,9 m€ og jukust um 9,0% frá árinu áður.



Samstæðan samanstendur af sömu félögum og áður en við bættist Hampidjan
Australia sem var stofnuð í byrjun ársins. 



Rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi var 7,2 m€ eða 12,2% af rekstrartekjum
en var 5,6 m€ eða 10,5% í fyrra. 



Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda að frádregnum
fjármagnsgjöldum voru 3,6 m€ til tekna en voru 2,9 m€ til tekna á fyrra ári. 



Hagnaður ársins var 9,9 m€ en var 7,7 m€ árið 2014.



Efnahagur



Heildareignir voru 102,5 m€  og hafa hækkað úr 95,1 m€ í árslok 2014.  Hækkunin
er tilkomin að mestu vegna fjárfestinga í vélum og byggingum ásamt eignarhlutum
í hlutdeildarfélögum.  Einnig hafa birgðir hækkað með tilkomu Hampidjan
Australia í samstæðuna. 



Eigið fé nam 70,4 m€, en af þeirri upphæð eru 8,6 m€ hlutdeild minnihluta í
eigin fé dótturfélaga. 



Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í árslok 69%
af heildareignum samstæðunnar. 



Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 21,7 m€ og lækkuðu um 1,1 m€ frá ársbyrjun.



Helstu tölur í íslenskum krónum



Miðað við gengi krónunnar gagnvart  evru í lok 2015 þá er velta samstæðunnar
8,3 milljarðar ISK,  EBITDA 1,3 milljarðar og hagnaður svipuð tala eða 1,4
milljarðar.  Efnahagurinn er 14,5 milljarðar, skuldir 4,5 milljarðar og eigið
fé 10,0 milljarðar. 



Aðalfundur



Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 18. mars 2016 í fundarsal
félagsins að Skarfagörðum 4 í Reykjavík og hefst fundurinn klukkan 16:00. 



Tillaga stjórnar um arðgreiðslu



Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2016 vegna rekstrarársins 2015 verði
greiddar 0,84 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 410 milljónir ISK.  Arðurinn
verði greiddur í viku 19. 

Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 18. mars 2016, þ.e.
viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á
arðsréttindadeginum 22. mars.  Arðleysisdagurinn er 21. mars. 



Samþykkt ársreiknings



Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Hampiðjunnar hf. þann 29.
febrúar 2016. 



Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar hf., 
www.hampidjan.is. 



Hjörtur Erlendsson, forstjóri:



„Sala á veiðarfærum og efnum til veiðarfæragerðar síðastliðið ár var jöfn og
góð innanlands og erlendis.  Síðustu mánuðir ársins voru sérstaklega góðir á
Íslandi vegna tilkomu nýrra skipa í skipaflota landsmanna og sala erlendis var
framar vonum, einkum í Bandaríkjunum og Danmörku. 



Olíuverð hélt áfram að lækka á síðasta ári og hafði það enn frekari áhrif til
lækkunar á sölur til olíuiðnaðarins en vegna þess að vöruframboð Hampiðjunnar
fyrir þá markaði er mjög sérhæft þá var lækkunin ekki eins mikil og búast hefði
mátt við.   Lækkanir á hráefnum til veiðarfæragerðar í kjölfar
olíuverðslækkunarinnar hafa verið takmarkaðar og mun minni en búist var við. 



Í byrjun ársins var nýtt fyrirtæki stofnað í Ástralíu og er það fyrst og fremst
sölufyrirtæki á efnum til veiðarfæragerðar.  Í lok ársins var fyrirtækið komið
á góðan skrið og mun væntanlega skila samstæðunni söluaukningu á árinu ef annað
helst svipað og verið hefur. 



Í Thyborøn á vesturströnd Jótlands var opnað nýtt og glæsilegt netaverkstæði
síðastliðið sumar.  Ennfremur var keypt bygging við Vestmannaeyjahöfn og þar
hefur nú verið sett upp netaverkstæði og útgerðavöruverslun.  Það netaverkstæði
verður stækkað í sumar og gert að fullkomnu nóta- og flottrollaverkstæði.  Það
er einn liður í stefnu okkar að auka og bæta þjónustu við útgerðir á Íslandi en
það er okkar kjarnamarkaður. 

 Lán lækkuðu undanfarið ár en áfram hefur verið fjárfest í byggingum fyrir
netaverkstæði, framleiðslutækjum og vöruþróun.“ 



Nánari upplýsingar



Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664 3361.



Viðurkenndur ráðgjafi



Viðurkenndur ráðgjafi Hampiðjunnar á Nasdaq First North er PwC.