|
|||
![]() |
|||
2017-05-31 11:27:18 CEST 2017-05-31 11:27:18 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íbúðalánasjóður - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs apríl 2017Vanskil heimila lækkuðu í apríl Vanskil heimila með fasteignalán hjá Íbúðalánasjóði lækkuðu í aprílmánuði. Heildarfjárhæð vanskila lækkaði úr 1,5 milljörðum króna í 1,3 milljarða. Undirliggjandi kröfuvirði einstaklingslána í vanskilum fór úr 14,2 milljarði króna í 13,0 milljarða. Heimilum með lán í vanskilum hjá sjóðnum fækkaði um 50 í mánuðinum. Af þeim 35.267 heimilum sem voru með fasteignalán hjá Íbúðalánasjóði í loks apríl voru 742 heimili í vanskilum. Eru því um 98% heimila með lán hjá Íbúðalánasjóði í skilum. Uppgreiðslur drógust saman milli mánaða Meðaluppgreiðsla í mánuði á íbúðalánum hjá ÍLS, það sem af er ári, er í kringum 4 milljarðar króna. Að undanskildum marsmánuði er meðaltalið þó lægra eða í kringum 3,6 milljarðar. Uppgreiðslur í apríl námu 3,4 milljörðum króna. Frekari upplýsingar um stöðu lánasafns og markaðsupplýsingar tengdar útgáfum sjóðsins má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu fyrir apríl. |
|||
|