|
|||
![]() |
|||
2017-12-06 18:29:37 CET 2017-12-06 18:30:00 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FlöggunFjarskipti hf. : Nýtt skipuritNýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Fjarskiptum hf. eftir samrunann við 365 þann 1. desember síðastliðinn. Helstu breytingar eru eftirfarandi: Björn Víglundsson er nýr framkvæmdastjóri Miðla. Björn hefur starfað hjá Vodafone frá árinu 2005, fyrst sem framkvæmdastjóri Markaðssviðs, þá framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs og nú síðast framkvæmdastjóri Sölu & þjónustusviðs. Áður starfaði Björn hjá Toyota á Íslandi og Tryggingamiðstöðinni. Björn er menntaður viðskiptafræðingur frá University of Tampa í Bandaríkjunum. Hann er giftur Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra Samtaka Ferðaþjónustunnar og eiga þau þrjú börn. Þorvarður Sveinsson er nýr framkvæmdarstjóri Fyrirtækja og þróunar. Þorvarður hefur starfað hjá Vodafone frá 2015 og leitt stærri þróunarverkefni félagsins sem yfirmaður stefnumótandi verkefna og er stjórnarformaður Vodafone Færeyja. Áður starfaði Þorvarður að þróunarmálum hjá Skiptum og Klakka og sem verkefnastjóri hjá Kögun auk þess að hafa setið í stjórnum fjölda fyrirtækja. Þorvarður er menntaður fjarskiptaverkfræðingur frá Harvard University. Hann er giftur Margréti Helgu Ögmundsdóttur, rannsóknasérfræðingi hjá Háskóla Íslands og eiga þau þrjú börn. Ragnheiður Hauksdóttir er nýr framkvæmdastjóri Einstaklinga. Ragnheiður hefur starfað hjá Vodafone frá 2004. Fyrst sem forstöðumaður fyrirtækjalausna, síðan forstöðumaður þjónustuvers og nú síðast forstöðumaður notendakerfa á tæknisviði. Ragnheiður er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er gift Sævari Smára Þórðarsyni rekstrariðnfræðingi og eiga þau fjögur börn. Frekari upplýsingar: * Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Vodafone, tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjolmidlar@vodafone.is eða í síma 669-9330. [] |
|||
|