|
|||
2017-12-07 17:07:59 CET 2017-12-07 17:09:00 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Félagsbústaðir hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFélagsbústaðir - Útgáfuáætlun skuldabréfa, stofnun útgáfuramma og fyrirhugað útboðStjórn Félagsbústaða samþykkti í dag, 7. desember 2017, heimild til útgáfu skuldabréfa allt að 7,5 milljörðum króna á tímabilinu frá desember 2017 til ársloka 2018. Framangreind heimild veitti stjórnin samhliða samþykkt hennar á fjárhagsspá félagsins fyrir komandi fjárhagsár 2018, með fyrirvara um staðfestingu borgarstjórnar á fjárhagsspá. Stjórnin samþykkti jafnframt í dag að stofna til útgáfuramma skuldabréfa, með það fyrir augum að auka þátt skuldabréfaútgáfu í fjármögnun félagsins, hefja reglulega skuldabréfaútgáfu og skapa heildarumgjörð um skuldabréfaútgáfu félagsins á næstu árum. Undir rammanum mun félagð geta gefið út skuldabréf að útistandandi fjárhæð allt að 50 milljörðum króna. Félagsbústaðir fyrirhuga lokað útboð á nýjum skuldabréfum á næstu vikum. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og mun félagið ásamt bankanum kynna fjárfestum þá skuldabréfaflokka sem boðnir verða ásamt fjárhagsspá félagsins. Nánari upplýsingar veita: Auðun Freyr Ingvarsson, framkvæmdastjóri Félagsbústaða, sími 520-1500, audun@felagsbustadir.is Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka, sími 444-7337, verdbrefamidlun@arionbanki.is
|
|||
|