|
|||
2011-11-24 17:55:53 CET 2011-11-24 17:56:54 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirStandard & Poor's breytir horfum á lánshæfismati Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugarMatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt horfum á lánshæfismati Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar. Mat fyrirtækisins á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar, BB, helst óbreytt. Tilkynning Standard & Poor's kemur í kjölfar samskonar breytingar sem fyrirtækið hefur gert fyrir lánshæfismat ríkissjóðs tilkynnt þann 23. nóvember. Að mati Standard & Poor's endurspeglar breytingin almennt bættar efnahagshorfur á Íslandi. Landsvirkjun telur að þessi breyting hafi takmörkuð áhrif á útistandandi skuldabréf fyrirtækisins. Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is |
|||
|