2009-07-24 18:41:04 CEST

2009-07-24 18:42:04 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Nýherji hf. - Ársreikningur

- Uppgjör Nýherja hf. á fyrri árshelmingi 2009


Helstu niðurstöður á fyrri árshelmingi 2009

• Heildarhagnaður á fyrri árshelmingi nam 90 mkr. 

• Verulegur samdráttur í verkefnum í hugbúnaðarþróun og ráðgjöf á Íslandi

• Rekstur erlendra dótturfélaga að mestu samkvæmt áætlun

• Endurmat eignaliða hefur áhrif á heildarhagnað tímabilsins


Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Afkoma Nýherja hf. er undir væntingum á fyrri árshelmingi ársins 2009 og
samdráttur í eftirspurn á Íslandi meiri en áætlað var. Einkum hefur sala í
hugbúnaðarþróun og ráðgjöf dregist verulega saman. Hins vegar er sala í
ákveðnum vöruflokkum umfram áætlanir, svo sem í tæknibúnaði á neytendamarkaði
og rekstrarvöru. 

Rekstur erlendra dótturfélaga Nýherja hf. er að mestu samkvæmt áætlun. Þrátt
fyrir almennan samdrátt í Danmörku og Svíþjóð er verkefnastaða Applicon
félaganna þar ágæt og hafa þau endursamið við nokkra af sínum helstu
viðskiptavinum auk þess að hafa aflað nýrra verkefna. Starfsemi félaganna er
mikilvæg fyrir afkomu Nýherja hf. vegna efnahagsástands og gengisþróunar á
Íslandi því tekjur þeirra eru um þriðjungur af heildartekjum samstæðunnar og
vega því þyngra en oft áður. 

Heildarhagnaður Nýherja hf. á fyrri helmingi ársins er um 90 mkr en endurmat
eignaliða hefur veruleg áhrif á afkomu tímabilsins.“ 


Rekstrarniðurstaða á fyrri árshelmingi 2009

Fyrstu 6 mánuðir ársins - Lykiltölur (Sjá viðhengi) 
Sala á vöru og þjónustu nam 7.037 mkr fyrstu 6 mánuði ársins 2009, samanborið
við 7.255 mkr á sama tímabili árið áður. Sala hefur því dregist saman um 3% á
milli ára. Tekjur starfseminnar á Íslandi námu 4.775 mkr, en 2.262 mkr hjá
erlendum dótturfélögum. 

Laun og launatengd gjöld námu 3.164 mkr en voru 2.919 mkr fyrir sama tímabil
árið áður. Vegna gengisbreytinga hafa laun erlendra starfsmanna hækkað um 48% í
íslenskum krónum milli fyrri árshelminga 2008 og 2009, eða um 444 mkr.
Meðalfjöldi stöðugilda fyrstu 6 mánuði ársins 2009 var 662 en var 755 fyrir
sama tímabil árið áður. Rekstrarkostnaður var um 1.300 mkr, en var 954 mkr yfir
sama tímabil í fyrra. Rekstrartap fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta -
EBITDA - nam 117 mkr á tímabilinu en EBITDA var jákvæð um 268 mkr árið áður. 

Hrein fjármagnsgjöld voru 333 mkr í samanburði við 669 mkr á sama tímabili árið
2008. Tap tímabilsins var 793 mkr en tap fyrstu 6 mánuði ársins 2008 nam 432
mkr. Heildarhagnaður nam 90 mkr en heildartap á fyrri helmingi ársins 2008 nam
298 mkr. 

Efnahagsreikningur 30.06 2009 - Lykiltölur (Sjá viðhengi) 
Heildareignir í lok tímabilsins voru 10.173 mkr samanborið við 9.952 mkr í lok
ársins 2008. Langtímaskuldir hafa hækkað frá árslokum úr 2.669 mkr í 2.746 mkr.
Skammtímaskuldir hafa hækkað frá árslokum úr 5.319 mkr í 5.377 mkr. Eigið fé í
lok júní 2009 var 2.050 mkr og er eiginfjárhlutfall nú 20,2% en var 19,7% um
síðustu áramót. 

Í öðrum ársfjórðungi voru nokkrir eignarliðir í efnahagsreikningi samstæðunnar
endurmetnir. Fasteignir og innréttingar í eigu félagsins eru nú bókfærðar á
1.717 mkr. Auk þess er viðskiptavild vegna eigna í dótturfélögum lækkuð um 180
mkr og skattainneign færð niður um 150 mkr, eða samtals um 330 mkr og skýrir
það hækkun afskrifta og aukið rekstrartap í ársfjórðunginum. 


Rekstrarniðurstaða á öðrum ársfjórðungi 2009

Fjórðungsyfirlit - Lykiltölur (Sjá viðhengi) 
Sala á vöru og þjónustu nam 3.479 mkr á öðrum ársfjórðungi, samanborið við
3.828 mkr á sama tímabili árið 2008. Tekjur hafa dregist saman um 9% frá öðrum
ársfjórðungi 2008. 

Laun og launatengd gjöld námu 1.602 mkr en voru 1.550 mkr fyrir sama tímabil
2008. Heildarfjöldi stöðugilda í lok tímabilsins var 644 en var 755 fyrir sama
tímabil í fyrra. Vegna gengisbreytinga hafa laun erlendra starfsmanna hækkað um
44% í íslenskum krónum milli annars ársfjórðungs 2008 og 2009, eða um 223 mkr. 
Rekstrarkostnaður var 769 mkr á öðrum ársfjórðungi en var 567 mkr á sama tíma á
árinu 2008. Rekstrartap fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA -
nam 109 mkr á tímabilinu en EBITDA var jákvæð um 123 mkr á sama tímabili fyrir
árið 2008. 

Hrein fjármagnsgjöld voru 257 mkr í samanburði við 155 mkr á öðrum ársfjórðungi
2008. Heildarhagnaður í fjórðungnum nam 88 mkr en heildartap á öðrum
ársfjórðungi í fyrra nam 89 mkr. 


Yfirlit yfir rekstur

Sala á tölvum og tæknibúnaði, hjá Nýherja  hf. móðurfélagi samstæðunnar, er í
meginatriðum í samræmi við áætlanir. Sala á rekstrarvörum er umfram væntingar,
en hins vegar er minni eftirspurn eftir samskipta- og netbúnaði og
skrifstofubúnaði. 

Tekjur hjá Skyggni ehf., tækni- og rekstrarþjónustufyrirtæki samstæðunnar voru
nokkuð undir áætlun. Það má meðal annars rekja til færri verkefna við
uppsetningu á nýjum tækjabúnaði og frestun á þjónustuverkefnum hjá
viðskiptavinum. Skyggnir hefur á tímabilinu undirritað nokkra nýja sérfræði- og
rekstrarþjónustusamninga sem tryggja viðskiptavinum hagræðingu í rekstri sinna
upplýsingatæknikerfa. Fastar samningstekjur voru því í takt við áætlun og voru
um þrír fjórðu hlutar af heildartekjum félagsins. 

Rekstur Sense ehf. var ágætur og afkoma yfir áætlun í lok ársfjórðungsins. Það
má einkum rekja það til mikillar sölu á myndavélum og tæknibúnaði á
neytendamarkaði. Hins vegar eru stærri verkefni í hljóð- og myndlausnum færri
nú en áður, en verkefnastaðan framundan er viðunandi. 

Hinn mikli samdráttur og stöðnun, sem orðinn er í íslensku atvinnulífi, hefur
leitt til sérstaklega erfiðra skilyrða fyrir rekstur hugbúnaðar- og
ráðgjafarfyrirtækja. Margir viðskiptavinir hafa haft hug á að ráðast í ýmis
verkefni en vegna óvissu í efnahagslífinu og takmarkaðs aðgangs að fjármagni er
ákvörðunum slegið á frest, sem hefur leitt til verulegs samdráttar í verkefnum
hugbúnaðarsérfræðinga og ráðgjafa. 

Sá samdráttur hefur bitnað á rekstri TM Software ehf. og hefur útseldum tímum
fækkað um tugi prósenta, sem leitt hefur til taps í rekstri. Til að mæta þessum
samdrætti hefur stjórnendum og sérfræðingum TM Software tekist að afla frekari
hugbúnaðarverkefna erlendis, sem nú eru yfir 20% af tekjum fyrirtækisins.
Viðunandi afkoma var af starfsemi EMR ehf., dótturfélags TM Software ehf. á
fyrri helmingi ársins, en EMR ehf. sérhæfir sig í heilbrigðistengdri
upplýsingatækni. Verkefnastaða EMR er góð og starfsmönnum hefur fjölgað í
kjölfar aukinnar eftirspurnar eftir þjónustu fyrirtækisins. 

Applicon ehf. var rekið með tapi á öðrum ársfjórðungi eins og TM Software ehf.
vegna mikils samdráttar í verkefnum  á Íslandi. Í ársfjórðungnum var ráðist í
víðtækar breytingar á starfsemi Applicon ehf., sem meðal annars fólust í lækkun
kostnaðar og aukinni áherslu á sölu verkefna erlendis. Íslenskir sérfræðingar
frá Applicon ehf. eru nú starfandi í Hollandi, Bretlandi og á Norðurlöndunum og
hafa tekjur af erlendri þjónustu vaxið stöðugt. 

Rekstur Vigor ehf. dótturfélags Applicon ehf., er í jafnvægi en félagið annast
rekstur og þjónustu á viðskiptahugbúnaði fyrir flest stærri orkufyrirtæki
landsins. 

Í kjölfar falls bankanna hefur fyrirtækjum á sviði rekstrarráðgjafar fjölgað og
samkeppni því aukist, samhliða samdrætti í sérhæfðum verkefnum. Sú þróun hefur
valdið tapi í rekstri ráðgjafarfyrirtækisins ParX ehf. en brugðist hefur við
breyttum aðstæðum með lækkun rekstrarkostnaðar, sem áætlað er að skili betri
afkomu á síðari árshelmingi. 

Starfsemi Applicon A/S í Danmörku er samkvæmt áætlun, þó svo að aðstæður í
dönsku efnahagslífi séu nú erfiðari en oft áður. Applicon A/S hefur gert nýja
samninga til næstu missera við nokkra af sínum stærri viðskiptavinum eins og
Dong Energy A/S, sem er leiðandi orkufyrirtæki í Danmörku. Verkefnastaða
félagsins fyrir síðari árshelming er góð og horfur á ágætri afkomu eins og
verið hefur undanfarin ár. 

Rekstur Applicon í Svíþjóð var jákvæður í öðrum ársfjórðungi og í samræmi við
áætlanir. Félagið hefur haldið áfram sinni uppbyggingu, meðal annars með gerð
samnings við Álandsbanka, sem nýlega tók yfir rekstur Kaupþings þar í landi, um
rekstur á SAP tölvukerfi bankans. Samhliða réði Applicon til sín sex af
starfsmönnum tölvudeildar bankans. Þá vinnur Applicon náið með stærri bönkum í
Svíþjóð, svo sem Nordea bankanum, Swedbank og Handelsbanken við innleiðingu og
þjónustu á hugbúnaðarkerfum. Þrátt fyrir nokkurn samdrátt í sænsku efnahagslífi
eru horfur fyrir Applicon ágætar. 

Afkoma Dansupport A/S í Danmörku var neikvæð en samdráttur í verkefnum hefur
gert dönskum upplýsingatæknifyrirtækjum erfitt fyrir. Það hefur tekið lengri
tíma en áætlað var að ná jafnvægi í rekstri Dansupport en vonast er til þess að
það náist á síðari árshelmingi ársins 2009. 


Rekstrarumhverfi

Nú um tíu mánuðum eftir efnahagshrun á Íslandi er áframhaldandi samdráttur á
innanlandsmarkaði, og enn er mikil óvissa um hvenær og við hvaða aðstæður
fyrirtæki munu ná viðspyrnu og að eðlilegra rekstrarumhverfi skapist. Sú mikla
töf sem orðið hefur á endurfjármögnun bankanna og að koma þeim í eðlilegan
rekstur, jafnframt því að ljúka samningum við nágrannaþjóðir og erlenda
kröfuhafa um stærri ágreiningsmál, veldur atvinnulífinu æ meira tjóni. Þessi
staða tefur enn frekar fyrir því að atvinnurekstur og afkoma fyrirtækja færist
í eðlilegra horf. Hjá Nýherja og fjölmörgum öðrum fyrirtækjum endurspeglast
þessi vandi meðal annars í eftirfarandi: 

• Skyndilegur og mikill samdráttur í verkefnum svo sem á sviði
  hugbúnaðarþróunar og ráðgjafar hefur valdið verkefnaskorti hjá sérfræðingum,
  sem vegna óvissunnar sér ekki enn fyrir endann á.
• Ef ekki næst vendipunktur brátt er hætta á að sú fjárfesting í nýsköpun og
  þróun sem ráðist hefur verið í á liðnum misserum á sviði hugbúnaðar og tækni
  rýrni og kunni að glatast hérlendis. 

• Vel menntað og sérhæft starfsfólk er farið að flytjast til starfa erlendis og
  hafa um 3% starfsmanna Nýherjasamstæðunnar þegar flutt eða eru að flytjast til
  starfa hjá upplýsingatæknifélögum erlendis, þar á meðal til dótturfélaga
  Nýherja. 

• Vegna óljósrar stöðu bankanna og veikrar eiginfjárstöðu eiga fyrirtæki í
  erfiðleikum með að fjármagna fjárfestingar til hagræðingar í rekstri sem tefur
  möguleika á bættri afkomu fyrirtækja. 

• Í ýmsum atvinnugreinum svo sem upplýsingatækni hafa ríkisbankar og kröfuhafar
  tekið yfir rekstur fyrirtækja og haldið uppi harðri samkeppni gegn
  samkeppnisfyrirtækjum sem ekki lentu í þroti. 

• Opinber fyrirtæki og stofnanir hafa skorið niður aðkeypta sérfræðiþjónustu á
  ýmsum sviðum og annast verkefni með eigin starfsmönnum og kemur því ekki til
  fækkunar þar, en fækkun starfsmanna kemur fram hjá einkafyrirtækjum. 


Ísland á mörg sóknarfæri í verkefnum erlendis, svo og möguleika á að laða
hingað til lands fjárfestingar erlendra aðila. Nú er mikilvægt að ljúka þeim
meginmálum sem lúta að endurreisn bankanna og ná sáttum við nágrannalönd okkar,
þannig að fyrirtækin geti náð viðspyrnu á ný og að viðsnúningur geti orðið í
atvinnulífinu. 


Horfur

Rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi verður erfitt áfram og einnig hefur orðið
nokkur efnahagssamdráttur í Danmörku og Svíþjóð. Áframhaldandi óvissa er því um
afkomu af innlendri starfsemi Nýherja en afkomuhorfur erlendra dótturfélaga eru
viðunandi. 


Fjárhagsdagatal fyrir 2009:

Áætluð birting árshlutauppgjörs fyrir árið 2009.

Þriðji ársfjórðungur	23. október
Fjórði ársfjórðungur	29. janúar


Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutauppgjör fyrir annan ársfjórðung 2009 var samþykkt á stjórnarfundi
Nýherja hf. 24. júlí 2009. Árshlutauppgjör Nýherja hf. er gert í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting
Standards). Þýðingarmunur erlendra dótturfélaga er nú tilgreindur í yfirliti um
heildarafkomu árshlutareiknings í samræmi við ákvæði alþjóðlega staðalsins. 


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir:
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.


Nýherji hf.

Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu
starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina.
Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og
vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og
rekstrarþjónustu. Félög Nýherja samstæðunnar í rekstri eru 20 bæði hér heima og
erlendis og er heildarfjöldi stöðugilda 644. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í
OMX Kauphöll Íslands. 

Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh. Jónsson. Þórður Sverrisson er forstjóri Nýherja.