2015-03-29 18:58:02 CEST

2015-03-29 18:59:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf.: Samruni Landsbankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja


·         Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tekið ákvörðun um samruna Landsbankans
og Sparisjóðs Vestmannaeyja. 

·         Samruninn tók gildi sunnudaginn 29. mars kl. 15:00.

·         Frá og með þeim tíma urðu allir starfsmenn sparisjóðsins starfsmenn
Landsbankans. 

·         Landsbankinn hefur yfirtekið allar eignir og skuldbindingar sjóðsins,
þ.m.t. útlán og innlán viðskiptavina. 

·         Starfsemi útibúa Sparisjóðs Vestmannaeyja verður óbreytt fyrst um
sinn og öll fimm útibú sjóðsins opna á hefðbundnum tíma   mánudagsmorguninn 30.
mars. 

·         Netbankar eru aðgengilegir viðskiptavinum eins og verið hefur.

·         Landsbankinn er vel í stakk búinn til að taka við rekstri og
skuldbindingum sparisjóðsins. 

·         Landsbankinn býður viðskiptavini sparisjóðsins velkomna.

Sparisjóður Vestmannaeyja hefur um nokkurt skeið ekki uppfyllt lögbundnar
kröfur um eigið fé og þurfti því að finna lausnir á fjárhagsvanda sínum. Stjórn
sparisjóðsins leitaði því til Landsbankans eftir að aðrar tilraunir til að
endurreisa sjóðinn báru ekki árangur. 

Í framhaldi komust stjórn sparisjóðsins og Landsbankinn að samkomulagi um
samruna félaganna. Í kjölfarið hefur FME í dag, 29. mars, tekið ákvörðun um
samruna þeirra á grundvelli bráðabirgðaákvæðis VI í lögum 161/2002 um
fjármálafyrirtæki. 

Við samrunann er virði stofnfjár sparisjóðsins metið á 332 milljónir króna.
Matið er háð hugsanlegum leiðréttingum en getur þó aldrei orðið minna en 50
milljónir króna og aldrei meira en 550 milljónir króna.  Sem endurgjald fyrir
stofnfé sparisjóðsins fá fyrrum stofnfjáreigendur sparisjóðsins hlutabréf í
Landsbankanum sem samtals nemur tæplega 0,15% af útgefnu hlutafé bankans, en
endanlegur hlutur er háður mati á virði stofnfjár sparisjóðsins. 

Sparisjóður Vestmannaeyja er með starfsstöðvar á fimm stöðum á landinu: Í
Vestmannaeyjum, á Selfossi, Höfn, Breiðdalsvík og Djúpavogi. Landsbankinn rekur
útibú á Selfossi og Höfn og þar verða útibú sameinuð fljótlega. 

Lögð verður áhersla á að samruninn efli þjónustu við viðskiptavini og samskipti
þeirra við bankann. Öll útibú sparisjóðsins opna á venjubundnum tíma á mánudag
og viðskiptavinir geta snúið sér til sinna þjónustufulltrúa að venju. Fyrst um
sinn munu reikningar og reikningsnúmer haldast óbreytt. 



Þorbjörg Inga Jónsdóttir, fráfarandi stjórnarformaður Sparisjóðs Vestmannaeyja
segir: 

„Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja hefur að undanförnu leitað leiða til að
tryggja rekstrargrundvöll sjóðsins. Með samkomulagi við Landsbankann hefur
náðst farsæl niðurstaða sem tryggir hag sjóðsins, eigenda hans og viðskiptavina
og almannahag á þeim stöðum þar sem sparisjóðurinn hefur starfsemi. Vegna stöðu
sparisjóðsins var óhjákvæmilegt að leita samstarfs við traustan aðila til
framtíðar og við viljum þakka Landsbankanum fyrir samstarfið á undanförnum
dögum.“ 



Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir:

„Sparisjóður Vestmannaeyja hefur gengt mikilvægu hlutverki á þeim stöðum þar
sem hann hefur haft starfsemi. Landsbankinn mun leggja sig fram um að taka vel
á móti viðskiptavinum sparisjóðsins og sinna þeim eins og best verður á kosið.
Við leggjum áherslu á að samþætting í kjölfar samrunans gangi vel og hratt
fyrir sig til þess að tryggja öfluga fjármálaþjónustu á þessum svæðum. Ég býð
viðskiptavini sparisjóðsins velkomna í Landsbankann.“ 



Nánari upplýsingar:

Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn.is 410 4011 eða 899 9352.