2008-12-29 12:21:51 CET

2008-12-29 12:22:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Orkuveita Reykjavíkur tryggir sér 5 milljarða með skuldabréfaútgáfu



Orkuveita Reykjavíkur hefur, fyrir milligöngu Landsbanka Íslands,
tryggt sér 5 milljarða króna með útgáfu nýs skuldabréfaflokks.
Flokkurinn er opinn og verður skráður í Kauphöll Íslands í byrjun árs
2009. Vextir skuldabréfanna nema 125 punkta álagi á REIBOR. Lánið er
ætlað til að brúa lánsfjárþörf ársins 2008 en uppnám á
fjármálamörkuðum á síðasta fjórðungi ársins 2008 hefur tafið
afgreiðslu þegar umsaminna erlendra lána Orkuveitu Reykjavíkur.