|
|||
2013-04-26 18:01:09 CEST 2013-04-26 18:02:11 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 22. mars sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 30. apríl nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 26. apríl. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra muni byggja á hreina verðinu 103,0 (ávöxtunarkrafa 2,80%). Nánari upplýsingar um skiptaverð þ.e. með áföllnum vöxtum og verðbótum liggur fyrir nk. mánudag þegar Hagstofa Íslands birtir neysluverðsvísitöluna fyrir apríl. |
|||
|