|
|||
2009-07-13 13:48:30 CEST 2009-07-13 13:49:30 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisvíxla - RIKV 09 1116Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 09 1116 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 11:00 í dag. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 09 1116: Alls bárust 53 gild tilboð í flokkinn RIKV 09 1116 að fjárhæð 66.467 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 40.000 m.kr. að nafnverði á meðalverðinu 97,67 (flatir vextir 6,93%). Hæsta verð tekinna tilboða var 97,895 (6,24%) og lægsta verð tekinna tilboða var 97,48 (7,51%). |
|||
|